Twingo lagt í stæði

Áhættuleikari sýnir hvernig "á að leggja" Renault Twingo í stæði.




PT Cruiser búinn að vera?

Bílabloggarinn Scott Burgess telur að Chrysler eigi að dömpa PT Cruiser úr framleiðslulínunni sinni. Hann hafi verið tilraun sem mistókst.

CH008_002PT

Facelift á Range Rover Sport?

Detnews.com telur sig vera með mynd af Range Rover með uppfærðu útliti eða "Facelift" eins og það er kallað í bílabransanum. Erfitt að segja hvort þetta séu endanlegar útlitsbreytingar.

Uppfærð útgáfa af bílnum er væntanleg á næsta ári.


Land Rover í Norðurljósum

Vilbogi M. Einarsson, áhugaljósmyndari, hefur tekið mjög fallegar myndir af Land Rover, baðaðan í Norðurljósum. Þarna má einnig sjá flotta mynd af Land Rover flotanum hjá Bílaleigunni Ísak.

land rover i nordurljosum

Of svalur

shakrah khanVek athygli á teaser auglýsingunni fyrir nýja Hyundai i10 (sem kemur til Íslands í apríl n.k.) sem framleidd var með einni helstu stjörnu Bollywood á Indlandi. Hann er, eins og einhver myndi segja, of svalur!

Við fengum þetta indverska efni sent til gamans frá vinum okkar hjá Hyundai. Á ekki von á að það verði notað í auglýsingar hér. Það er hægt að kíkja á þetta hér undir erlendar auglýsingar.

Porsche Cayman vs. BMW 135i Coupé

Ég minntist fyrr í dag á hörkukeppni sem átti sér stað á milli Porsche Cayman og BMW 1 series coupé í nýjasta þættinum af Fifth Gear. Þáttastjórnendurnir settu þá í nokkrar ólíkar keppnir til að komast að því hver stæði framar.

Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn sem ég sé þessa tvo bíla borna saman. Automotive und Sport tók þá í svipaðar prufur og munurinn í stigagjöf var mun meiri en vaninn er hjá þeim á milli bíla í sama flokki. BMW 1-línu coupé-inn virðist vera að gera 1-línuna hjá BMW meira spennandi. Þetta er vissulega smábíll og harðir BMW aðdáendurnir hafa ekkert verið að missa sig yfir kraftinum í honum.

En nýrri útgáfurnar af 1-línunni, sérstaklega þær sem eru með kraftmiklum vélum, eru að koma rosalega vel út, eins og þessi samanburður við Porsche-inn sýnir. Ég prófaði nýjan beinskiptan 2.0 dísel svona BMW-ás í Munchen um daginn og setti hann léttilega í 200 km/klst á þýsku hraðbrautunum. Svolítið eins og að keyra Mini-Cooper S.


Hér er fyrra myndbrotið úr Fifth Gear:

 


Hér er seinna myndbrotið: 



Keppnismaður fram í fingurgóma

Það er hægt að segja margt um Alonso kallinn. Hann er augljóslega ekki mjög hógvær maður ogAlonso hógværar eru launakröfurnar ekki heldur.

En hann er keppnismaður fram í fingurgóma og Renault menn gleyma því ekki hver færði þeim heimsmeistaratitilinn. Ég gæti trúað að Alonso og Renault eigi góða möguleika í ár, sumir keppinautarnir eru skaddaðir og bíllinn lofar góðu.

Gaman að sjá þarna mynd með fréttinni sem Ágúst Ásgeirsson tók á frumsýningunni á nýja bílnum í París en ég þurfti aðeins að toga í spotta hjá höfuðstöðvum Renault til að koma Ágústi fremst á bekk með heimspressunni.

mbl.is Alonso með 3,1 milljarð í laun hjá Renault
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2 mín og 29 sek í nýju Sónötunni

Hyundai verður öflugari framleiðandi með hverjum deginum sem líður. Þeir sem vanmátu Toyota á sínum tíma (áður en hann varð stærsti bílaframleiðandi í heimi) ættu ekki að vanmeta Hyundai sem er fimmti stærsti framleiðandinn og stefnir hærra.

Í þessu myndbandi fer fulltrúi Cars.com yfir 2009 árgerðina af Hyundai Sonata á 2 mínútum og 29 sekúndum.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband